Austurríki er komið í undanúrslit Evrópumóts kvenna í knattspyrnu eftir sigur á Spáni í vítaspyrnukeppni í dag. Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var markalaus, eftir fremur bragðdaufan leik.
Austurríki skoraði úr öllum fimm vítaspyrnum sínum en Silvia Meseguer brenndi af úr þriðju spyrnu Spánverja. Austurríki mætir Danmörku í undanúrslitum, en danska liðið hafði betur gegn ríkjandi Evrópumeisturum Þýskalands fyrr í dag.