Crystal Palace og Leeds mætast í áttundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Selhurst Park í London klukkan 15 og hægt er að sjá leikinn í beinni útsendingu hér á mbl.is.
Útsendingin hefst kl. 14.30 með upphitun fyrir leikinn og er á sérvefnum Enski boltinn.
Liðin eru hnífjöfn í 12. og 13. sæti deildarinnar með 10 stig hvort eftir sjö leiki en Leeds er fyrir ofan á betri markatölu.