Talsvert meira um kærustur en kærasta

„Það er oft eitthvað í gangi á Íslandi sem maður myndi alveg vilja taka þátt í en á sama tíma færir þetta manni önnur tækifæri líka,“ sagði Ómar Páll Sigurbjartsson, eiginmaður Dagnýjar Brynjarsdóttur, landsliðskonu Íslands í knattspyrnu, í Dætrum Íslands, vefþætti mbl.is sem fram­leidd­ur er af Studio M.

Dagný, sem er þrítug, er samningsbundin West Ham á Englandi en hún flutti til London ásamt Ómari og fjögurra ára gömlum syni þeirra Brynjari Atla í janúar á síðasta ári.

„Það eru aðallega kærustur hjá West Ham,“ sagði Ómar þegar hann var spurður að því hvort hann hefði náð að tengjast kærustum leikmanna kvennaliðs West Ham.

Dagný er í nærmynd í fjórða þætti af Dætrum Íslands en hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 24. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 24. APRÍL

Útsláttarkeppnin