Stefnt á atvinnumennsku frá fimm ára aldri

„Ég ætlaði alltaf að verða atvinnukona í fótbolta,“ sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, í Dætrum Íslands, vefþætti mbl.is sem fram­leidd­ur er af Studio M.

Karólína, sem er tvítug, gekk til liðs við þýska stórliðið Bayern München frá Breiðabliki í janúar á síðasta ári.

„Ég kem úr mikilli fótboltafjölskyldu og það var það eina í stöðunni að reyna að komast út,“ sagði Karólína meðal annars.

Karólína Lea er í nærmynd í áttunda þætti af Dætrum Íslands en hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 20. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 20. APRÍL

Útsláttarkeppnin