„Þetta er helvítis sprettur hjá manni stundum“

„Þetta er helvítis sprettur hjá manni stundum,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, í Dætrum Íslands, vefþætti mbl.is sem framleiddur er af Studio M.

Þorsteinn, sem er 54 ára gamall, tók við íslenska kvennalandsliðinu í janúar 2021 en í þættinum ræddi hann meðal annars aðstöðuna á Laugardalsvelli, þjóðarleikvangi okkar Íslendinga.

„Mómentið er löngu búið þegar maður nær loksins til fjórða dómarans,“ sagði Þorsteinn meðal annars í léttum tón.

Þorsteinn er í nærmynd í lokaþættinum af Dætrum Íslands en hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

LEIKIR Í DAG - 28. MARS

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 28. MARS

Útsláttarkeppnin