Lykilkona Svía ekki með annað kvöld

Hægri bakvörðurinn Hanna Glas verður ekki með annað kvöld.
Hægri bakvörðurinn Hanna Glas verður ekki með annað kvöld. AFP

Sænska knattspyrnukonan Hanna Glas verður ekki með Svíþjóð á móti Belgíu í 8-liða úrslitum Evrópumótsins í Leigh annað kvöld af völdum kórónuveirunnar.

Glas hefur spilað hverja einustu mínútu á mótinu hingað til í hægri bakverðinum. Ásamt Hönnu sýktist einnig hin 30 ára gamla Emma Kulberg, en hún hefur ekkert spilað á mótinu. 

Þetta er mikill missir fyrir sænska liðið og óvíst hvort þær yrðu klárar í undanúrslitunum, fari liðið þangað. 

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 24. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 24. APRÍL

Útsláttarkeppnin