Mikið áfall fyrir þýska liðið

Alexandra Popp meiddist í upphitun.
Alexandra Popp meiddist í upphitun. AFP

Þjóðverjinn Alexandra Popp, markahæstakona mótsins, meiddist í upphitun fyrir úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta gegn Englandi sem er í gangi núna.

Popp varð fyrir vöðvameiðslum í upphitun og það er Lea Schüller sem kemur inn í hennar stað. Þetta er mikið áfall fyrir þýska liðið en framherjinn knái hefur skorað sex mörk í fimm leikjum það sem af er móts. 

Úrslitaleikurinn er í gangi núna og mbl.is færir ykkur allt það helsta í beinni textalýsingu. 

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 23. APRÍL

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 23. APRÍL

Útsláttarkeppnin