Biður þjóðina afsökunar

Andriy Lunin biður stuðningsmenn Úkraínu afsökunar.
Andriy Lunin biður stuðningsmenn Úkraínu afsökunar. AFP/Tobias Schwarz

Markvörðurinn Andriy Lunin bað úkraínsku þjóðina afsökunar eftir frammistöðu sína í tapi fyrir Rúmeníu, 3:0, í fyrstu umferð E-riðilsins á Evrópumótinu í knattspyrnu í Þýskalandi í dag. 

Tapið var mikið sjokk fyrir Úkraínumenn en þeir voru líklegri aðilinn fyrir leik.

Lunin hefði átt að gera betur í tveimur mörkum Rúmeníu. Eftir leik bað hann úkraínsku þjóðina afsökunar á frammistöðunni. 

Lunin varði mark Real Madrid seinni helming síðasta tímabils og var lykilmaður í liði sem vann spænsku 1. deildina og Meistaradeildina. 

mbl.is

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin

ENGIR LEIKIR Á SKRÁ Í ÚTSLÁTTARKEPPNI

ÚRSLIT SÍÐUSTU LEIKJA

Spánn
14. JÚLÍ
2 : 1
England
Holland
10. JÚLÍ
1 : 2
England
Útsláttarkeppnin