Ísland-Danmörk: Jafntefli líklegustu úrslitin

Íslendingar fagna jafntefli gegn Dönum á Ólympíuleikunum í Peking þar …
Íslendingar fagna jafntefli gegn Dönum á Ólympíuleikunum í Peking þar sem Snorri Steinn jafnaði metin úr vítakasti í lok leiktímans. Brynjar Gauti

Leikir á milli Dana og Íslendinga hafa verið ótrúlega jafnir og spennandi hin síðari ár en þjóðirnar eigast við í lokaumferð riðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik í Linz á morgun. Í níu síðustu rimmum liðanna hefur sex leikjum lyktað með jafntefli í venjulegan leiktíma og aldrei hefur munað nema einu marki í sigurleikjunum.

Úrslit leikja á milli Dana og Íslendinga frá árinu 2005 hafa verið eftirfarandi:

2005:
Ísland - Danmörk 32:32

2006:
Ísland - Danmörk 28:28 (EM)
Ísland - Danmörk 34:33
Ísland - Danmörk 34:34

2007:
Ísland - Danmörk 28:28
Ísland - Danmörk 42:43 (HM)*

2008:
Ísland - Danmörk 37:36
Ísland - Danmörk 32:32

2009:
Ísland - Danmörk 29:29

* Staðan eftir venjulegan leiktíma var 34:34 en Danir höfðu betur í framlengingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert