Björgvin snéri sig

Björgvin Páll Gústavsson.
Björgvin Páll Gústavsson. Ljósmynd/Gordan Lausic

Landsliðsmarkvörðurinn, Björgvin Páll Gústavsson, snéri sig á ökkla í upphitun fyrir leik Íslands og Króatíu á EM í handknattleik í gær. 

Björgvin mun hafa stigið á bolta þegar íslenska liðið hitaði upp í aðdraganda leiksins. Var Björgvin teipaður og spilaði megnað af leiknum eða um 45 mínútur. 

Þjálfarinn, Geir Sveinsson, sagðist í dag búast við því að Björgvin yrði leikfær gegn Serbum á morgun nema ef svo færi að ökklinn bólgnaði mikið upp í dag. 

„Um tíma vissum við ekki hvort hann gæti byrjað leikinn gegn Króatíu en hann gerði það og ég held að meiðslin hafi ekki haft áhrif á frammistöðuna. Ég held að Bjöggi hafi komið þokkalega undan nóttinni. Ég held að hann ætti að geta spilað á morgun en bólgan kemur stundum seinna,“ sagði Geir við mbl.is í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert