Tveir Norðmenn markahæstir

Ólafur Guðmundsson er markahæstur í íslenska liðinu með 10 mörk.
Ólafur Guðmundsson er markahæstur í íslenska liðinu með 10 mörk. Ljósmynd/EHF

Tveir Norðmenn eru markahæstir á Evrópumóti karla í handknattleik en 2. umferð riðlakeppninnar lýkur í kvöld.

Hornamaðurinn Kristian Bjornsson og örvhenta skyttan Kent Robin Tönnesen hafa báðir skorað 12 mörk í fyrstu tveimur leikjum Norðmanna á mótinu. Króatinn Luka Cindric og Frakkinn Kentin Mahe koma næstir með 11 mörk.

Ólafur Andrés Guðmundsson er markahæstur í íslenska liðinu með 10 mörk, Arnór Þór Gunnarsson hefur skorað 9 og Aron Pálmarsson 8.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert