Frakkland vann með fullu húsi

Dika Mem skoraði 9 mörk fyrir Frakka og sækir hér …
Dika Mem skoraði 9 mörk fyrir Frakka og sækir hér að vörn Hvít-Rússa. AFP

Frakkar unnu nokkuð öruggan sigur á Hvít-Rússum, 32:25, í B-riðli Evrópumóts karla í handknattleik í Porec í Króatíu í kvöld. Þar með unnu Frakkar riðilinn á fullu húsi stiga.

Frakkar eru með 6 stig, Norðmenn 2, Hvít-Rússar 2 og Austurríkismenn ekkert. Austurríki og Noregur mætast í síðasta leiknum klukkan 19.30. Vinni Austurríkismenn fara þeir áfram á kostnað Hvít-Rússa, nema ef þeir vinna með tíu mörkum, þá kemur það í hlut Norðmanna að fara heim.

Dika Mem skoraði 9 mörk fyrir Frakka og Nikola Karabatic 6. Aliaksandr Padshyvalau skoraði 6 mörk fyrir Hvít-Rússa.

Komist Ísland áfram úr A-riðli síðar í kvöld mætir það þremur liðum úr B-riðli í milliriðlinum í Zagreb.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert