„Við báðum til Guðs“

Bogdan Radivojevic fagnar marki gegn Íslendingum í gær.
Bogdan Radivojevic fagnar marki gegn Íslendingum í gær. Ljósmynd/Uros Hocevar

Serbar fögnuðu mjög eftir leik Svía og Króata á EM í handknattleik í Split í gærkvöld. Þeir fögnuðu því að erkifjendur þeirra í liði Króatíu töpuðu og það sem meira er. Með sigri Svía komust þeir áfram í milliriðilinn á kostnað Íslendinga.

„Við báðum til Guðs um að Svíar myndu vinna leikinn,“ sagði Bogdan Radivojevic, leikmaður Serba, eftir leik Svía og Króata en Svíar, undir stjórn Kristjáns Andréssonar, fóru á kostum og innbyrtu fjögurra marka sigur, 35:31, eftir að hafa náð mest níu marka forskoti í síðari hálfleik.

Svíar fara í milliriðilinn með 4 stig, Króatar 2 en Serbar ekkert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert