Vonbrigðin einungis með mig sjálfan

Rúnar Kárason í leiknum gegn Svíum á EM.
Rúnar Kárason í leiknum gegn Svíum á EM. Ljósmynd/Uros Hocevar

Landsliðsmaðurinn Rúnar Kárason er hreinskilinn í twitter-færslu sem hann hefur sent frá sér en það varð ljóst í fyrrakvöld en Íslendingar eru úr leik á Evrópumótinu í handbolta í Króatíu.

„Eitt stærsta persónulega svekkelsi mitt sem handboltamaður var EM í Póllandi, ég hef unnið í mínum málum síðan til að koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur. Þetta mót er þar af leiðandi svekkelsi af sömu stærðargráðu, nema í staðinn fyrir að vera skúffaður yfir óréttlæti eru vonbrigðin einungis með mig sjálfan,“ skrifar Rúnar Kárason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert