Zdrahala markahæstur á EM

Ondrej Zdrahala er markahæstur á EM.
Ondrej Zdrahala er markahæstur á EM. AFP

Tékkinn Ondrej Zdrahala skaust upp í efsta sætið á markalistanum á Evrópumótinu í handknattleik í Króatíu með því að skora 14 mörk í sigri Tékka gegn Ungverjum í lokaumferð riðlakeppninnar í gærkvöld.

Aðeins fjórir leikmenn hafa náð að skora 14 mörk í leik á EM síðan árið 1994. Metið á Norðmaðurinn Kjetil Strand sem gerði sér lítið fyrir og skoraði 19 mörk í leik gegn Íslendingum á Evrópumótinu sem fram fór í Sviss 2006.

Markahæstu leikmenn á EM eru:

25 - Ondrej Zdrahala, Tékklandi
21 - Kristian Bjornsen, Noregi
21 - Uwe Gensheimer, Þýskalandi
19 - Nikola Bilyk, Austurríki
19 - Mikkel Hansen, Danmörku
18 - Mate Lekai, Ungverjalandi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert