Þýskir dómarar í kvöld

Ýmir Örn Gíslason og Alexander Petersson í leiknum gegn Portúgal …
Ýmir Örn Gíslason og Alexander Petersson í leiknum gegn Portúgal á HM í fyrra. AFP

Þjóðverjar koma til með að annast dómgæsluna þegar Ísland og Portúgal mætast í B-riðli lokakeppni EM karla í handknattleik í Búdapest í kvöld. 

Eru það þeir Robert Schulze og Tobias Tönnies en þeir eru eina þýska dómaraparið á mótinu. Má þá draga þá ályktun að þeir séu fremsta dómarapar Þjóðverja í dag en svo má vera að einhverjir hafi ekki átt heimagengt. 

Dómgæslan ætti alla vega að vera í góðum höndum hjá mönnum sem dæma að staðaldri í þýsku bundesligunni. 

Þeir gætu haft nóg að gera þar sem stundum hefur verið grunnt á því góða í leikjum Íslands og Portúgals. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert