Tímamótamark hjá landsliðsfyrirliðanum

Aron Pálmarsson þakkar áhorfendum fyrir stuðninginn í kvöld.
Aron Pálmarsson þakkar áhorfendum fyrir stuðninginn í kvöld. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Aron Pálmarsson skoraði tímamótamark fyrir Ísland gegn Hollandi í B-riðlinum á EM karla í handknattleik í Búdapest í kvöld. 

Þriðja mark Arons gegn Hollandi var mark númer 600 hjá kappanum fyrir íslenska landsliðið. Aron skoraði sex mörk gegn Hollendingum í kvöld og hefur skorað tíu mörk í fyrstu tveimur leikjunum á EM. 

Aron er fyrirliði Íslands í mótinu en hann keppti fyrst á stórmóti með A-landsliðinu á EM 2010 í Austurríki þegar Ísland fékk bronsverðlaun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert