Króatar, sem verða þriðju mótherjar Íslendinga í milliriðlakeppni Evrópumóts karla í handknattleik, hafa misst fjóra leikmenn í einangrun vegna kórónuveirusmita.
Línumennirnir Zeljko Musa og Nikola Grahovac, hornamaðurinn David Mandic og markvörðurinn Mate Sunjic hafa allir greinst jákvæðir fyrir veirunni. Þeir verða ekki með Króötum gegn Svartfjallalandi í dag eða gegn Danmörku á laugardag og hæpið að þeir nái leiknum við Ísland á mánudaginn kemur.
Nýir leikmenn hafa verið kallaðir inn í króatíska hópinn í þeirra stað.