Viggó skoraði fallegasta markið (myndskeið)

Viggó Kristjánsson í færi gegn Frökkum.
Viggó Kristjánsson í færi gegn Frökkum. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Eins og mbl.is hefur ítarlega fjallað um vann Ísland magnaðan 29:21-sigur á Frakklandi á EM karla í handbolta í gær.

Viggó Kristjánsson skoraði síðasta mark leiksins er hann lék á Dylan Nahi og skoraði með mögnuðu skoti yfir höfuðið á Wesley Pardin í franska markinu. Kórónaði Viggó þannig stórleik sinn en hann skoraði níu mörk. 

Markið var valið það besta í leikjum gærdagsins á samfélagsmiðlum EHF, Handknattleikssambandi Evrópu. Hér fyrir neðan má sjá fimm flottustu mörkin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert