Fyrstu mörk Þráins og Darra

Þráinn Orri Jónsson skoraði sín fyrstu landsliðsmörk í gær.
Þráinn Orri Jónsson skoraði sín fyrstu landsliðsmörk í gær. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Þráinn Orri Jónsson og Darri Aronsson, leikmenn Hauka, skoruðu báðir sín fyrstu mörk fyrir A-landslið Íslands í sigurleiknum gegn Svartfjallalandi. Þeir léku báðir sinn annan landsleik eftir að hafa komið inn í hópinn fyrir leikinn gegn Króatíu.

Þráinn Orri, sem er 28 ára gamall, skoraði tvö mörk og krækti í vítakast að auki og Darri, sem er 22 ára, skoraði eitt mark.

Þráinn lék upphaflega með Gróttu en síðan í fjögur ár í Noregi og Danmörku áður en hann kom til Hauka þarsíðasta sumar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert