Svíar unnu með 28 mörkum

Nathalie Hagman skoraði ellefu mörk.
Nathalie Hagman skoraði ellefu mörk. Ljósmynd/IHF

Svíþjóð rústaði Tyrklandi, 47:19, á Evrópumóti kvenna í handknattleik í Debrecen í Ungverjalandi í kvöld. 

Svíar eru komnir áfram í milliriðil-1 en sænska liðið endar í öðru sæti A-riðilsins á eftir heimakonum í Ungverjalandi. Tyrkir enda neðstir með eitt stig. 

Nathalie Hagman fór á kostum í liði Svíþjóðar en hún skoraði ellefu mörk. Þá skoraði Emma Filippa Lindqvist sex mörk. 

Stórsigur Frakka

Heimsmeistarar Frakklands unnu þá tólf marka sigur á Portúgal, 28:16, í C-riðlinum í Basel í Sviss. 

Frakkar unnu C-riðilinn með fullt hús stiga en Portúgal endaði neðst án stiga. 

Alicia Toublanc og Sarah Bouktit skoruðu fimm mörk hvor fyrir Frakkland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert