Suárez áfrýjar ekki tíu leikja banninu

Liverpool verður án markahróksins í næstu tíu leikjum.
Liverpool verður án markahróksins í næstu tíu leikjum. AFP

Luis Suárez, framherji Liverpool, ætlar ekki að áfrýja tíu leikja banninu sem hann var dæmdur í af enska knattspyrnusambandinu fyrir að bíta Branislav Ivanovic í leik Liverpool og Chelsea síðastliðinn sunnudag.

Þetta kemur fram á heimasíðu FA en Suárez fékk frest til dagsins í dag til að áfrýja. Úrúgvæinn og Liverpool voru mjög ósátt við lengd leikbannsins en hafa ákveðið að áfrýja ekki.

Suárez hefur afplánun leikbannsins strax í dag og verður því ekki með Liverpool í fjórum síðustu leikjum yfirstandandi leiktíðar og ekki heldur í sex fyrstu leikjum næsta tímabils.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert