Er meiri James Bond en óþokki

Vincent Tan er skrautlegur eigandi, svo ekki sé meira sagt.
Vincent Tan er skrautlegur eigandi, svo ekki sé meira sagt. AFP

Vincent Tan, hinn skrautlegi eigandi Cardiff City sem Aron Einar Gunnarsson leikur með, kom eins og stormsveipur inn í ensku úrvalsdeildina í vetur. Hann hefur verið áberandi fyrir umdeildar ákvarðanir sínar og breytti meðal annars upp á sitt eindæmi um lit á búningum liðsins.

Cardiff, sem er fallið úr ensku úrvalsdeildinni fyrir lokaumferðina í dag, spilaði áður í bláum búningum en hefur skartað rauðum á tímabilinu. Tan hefur nú stigið fram og sagst vera tilbúinn að endurskoða þá ákvörðun; en einungis ef liðið endurheimtir sæti sitt á meðal þeirra bestu. Hann hefur jafnframt gefið það út að hann muni ekki selja liðið þrátt fyrir fallið.

„Ég vil einbeita mér að því að koma liðinu aftur upp í úrvalsdeildina og þegar það er í höfn mun ég skoða hlutina, meðal annars hvað búningana varðar,“ sagði Tan, en litabreyting hans olli nokkru fjaðrafoki.

Tan hefur vakið athygli í vetur fyrir framkomu sína og ákvarðanir sem hafa fallið í grýttan jarðveg stuðningsmanna. Á dögunum var honum líkt við óþokka úr James Bond-myndunum og spurður út í þá líkingu sagðist Tan hins vegar líta miklu frekar á sig sem sjálfan Bond en einhvern bölvaðan óþokka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert