Sterling andaði að sér hláturgasi

Raheem Sterling.
Raheem Sterling. AFP

Liverpool mun ræða við Raheem Sterling sóknarmann liðsins en á meðan leik Liverpool gegn Newcastle stóð birtist myndband af kappanum á vefsíðu The Sun af honum anda að sér hláturgasi.

Sterling skoraði fyrra mark Liverpool í 2:0 sigri liðsins en samkvæmt frétt Sky Sports er hann sagður hafa fallið í yfirlið á myndskeiðinu. 

„Við vitum af atvikinu og munum ræða við leikmanninn. Allar frekari aðgerðir sem teknar verða munu haldast innan félagsins,“ sagði talsmaður Liverpool í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert