Liverpool í mál við Nike vegna Coutinho

Coutinho er mikið í umræðunni þessa dagana.
Coutinho er mikið í umræðunni þessa dagana. AFP

Enska knattspyrnufélagið Liverpool ætlar í mál við íþróttavöruframleiðandann Nike. Ástæðan er sú að Nike auglýsti Barcelonatreyjur með Coutinho á bakinu. Coutinho er leikmaður Liverpool en Barcelona hefur mikinn áhuga á að fá hann til sín.

Liverpool hafnaði þremur tilboðum frá Barcelona í Coutinho síðasta sumar, þrátt fyrir að Brasilíumaðurinn hafði áhuga á að fara til Spánar. 

Þær vangaveltur minnkuðu ekki þegar kom í ljós að Coutinho er ekki með Liverpool gegn Burnley í dag, en félagið segir það vegna smávægilegra meiðsla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert