Í fyrsta sinn í 25 ár hjá Chelsea

Hvorki Cesc Fabregas né Alexis Sanchez hafa unnið leik með …
Hvorki Cesc Fabregas né Alexis Sanchez hafa unnið leik með liðum sínum á árinu. AFP

Englandsmeistarar Chelsea gerðu markalaust jafntefli við Arsenal í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum í knattspyrnu og hafa þeir bláklæddu ekki unnið leik á árinu í þremur tilraunum.

Þetta er í fyrsta sinn í 25 ár sem Chelsea nær ekki að vinna neinn af fyrstu þremur leikjum sínum í upphafi árs, en Chelsea hefur gert þrjú jafntefli í röð. Áður gerði liðið 2:2 jafntefli við Arsenal 3. janúar og svo markalaust jafntefli við Norwich 6. janúar.

Arsenal hefur heldur ekki unnið neinn af fyrstu þremur leikjum sínum í ár og er það í annað sinn sem það gerist undir stjórn Arsene Wegner, en það gerðist einnig árið 2013. Auk tveggja jafntefla við Chelsea tapaði Arsenal fyrir Nottingham Forest, 4:2, í FA-bikarnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert