Markalaust í fyrra einvígi Chelsea og Arsenal

Cesar Azpilicueta og Alexis Sanchez eigast við í leik Chelsea …
Cesar Azpilicueta og Alexis Sanchez eigast við í leik Chelsea og Arsenal. AFP

Chelsea og Arsenal gerðu markalaust jafntefli þegar liðin áttust við í fyrri undanúrslitaleik sínum í enska deildabikarnum í knattspyrnu í kvöld.

Leikurinn var nokkuð jafn og bæði lið fengu sín færi. Chelsea átti fleiri skot á markið en náði ekki að finna leiðina fram hjá David Ospina í marki Arsenal, sem varði nokkrum sinnum vel.

Chelsea vildi vítaspyrnu í lokin en eftir að hafa ráðfært sig við myndbandsupptökur ákvað dómarinn Martin Atkinson ekki að dæma neitt. Leikurinn fjaraði að lokum út og niðurstaðan markalaust jafntefli.

Síðari leikur liðanna fer fram á Emirates-vellinum 24. janúar og sigurvegarinn mætir annaðhvort Manchester City eða Bristol City í úrslitaleik í febrúar. Manchester City vann fyrri viðureign þeirra liða 2:1 á heimavelli í gærkvöld.

Chelsea 0:0 Arsenal opna loka
90. mín. Það verða að minnsta kosti fimm mínútur í uppbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert