Matthew Le Tissier, sparkspekingur á Sky Sports, metur helstu félagaskipti sem áttu sér stað hjá liðunum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu fyrir tímabilið og gefur þeim leikmönnum einkunnir nú þegar keppnistímabilið er rúmlega hálfnað.
Le Tissier gefur Egyptanum Mohamed Salah hæstu einkunn eða 10 en Liverpool keypti Salah fyrir tímabilið frá Roma og hefur hann farið á kostum. Salah hefur skorað 23 mörk á leiktíðinni.
Tveir leikmenn sem Manchester City fékk fá 9 í einkunn en það eru markvörðurinn Ederson og bakvörðurinn Kyle Walker. Nemanja Matic sem Manchesteer United fékk frá Chelsea fær 8 og Wayne Rooney sem kom til Everton frá Manchester United fær 8.
Le Tissier gefur Gylfa Þór Sigurðssyni 5 í einkunn en hann kom til Everton frá Swansea. Í umsögn um Gylfa segir Le Tissier:
„Hann hefur sýnt batamerki og hefur átt nokkur góð augnablik en þú hefðir örugglega búist við meira frá honum eftir að félagið gerði hann að dýrasta leikmanninn í sögu félagsins til að fá hann til sín.“
Lægstu einkunn fær Renato Sánchez sem kom til Swansea frá Bayern München. Li Tissier gefur Portúgalanum 2 í einkunn.