Kane jafnaði Gerrard

Harry Kane.
Harry Kane. Ljósmynd/.premierleague.com

Harry Kane, framherji Tottenham, er leikmaður desembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Þetta er í sjötta sinn sem Kane hlýtur þessa viðurkenningu og hann jafnaði þar með goðsögnina Steven Gerrard hjá Liverpool. Engir hafa hlotið þennan heiður jafnoft og þeir.

Kane, sem er 24 ára gamall, skoraði átta mörk í sex leikjum með Tottenham í desember og náði því afreki að skora tvær þrennur í röð fyrir Lundúnaliðið.

Kane er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur skoraði 18 mörk, einu meira en Egyptinn Mohamed Salah hjá Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert