Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur verið valinn stjóri desembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Þetta er í fyrsta sinn frá því byrjað var að veita þessa viðurkenningu í ensku úrvalsdeildinni sem sami stjóri verður fyrir valinu í fjögur skipti í röð en Guardiola var útnefndur stjóri mánaðarins í september, október og nóvember.
Lærisveinar Spánverjans hafa farið algjörlega á kostum á þessu tímabili og er liðið taplaust í öllum keppnum á Englandi á leiktíðinni. Í desember vann City sjö leiki og gerði eitt jafntefli. Markatalan í þessum leikjum var 19:4.