Alltaf hægt að finna hár í súpunni

Jürgen Klopp hvetur sína menn áfram í dag.
Jürgen Klopp hvetur sína menn áfram í dag. AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var að sjálfsögðu mjög ánægður með 4:3-sigur sinna manna gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Liverpool er fyrsta liðið til að vinna City í deildinni á tímabilinu.

„Þvílíkur leikur,“ var það fyrsta sem Klopp sagði við fréttamenn í leikslok. „Þetta er leikur sem talað verður um í 20 ár, því City mun ekki tapa aftur á árinu. Þetta er ástæðan fyrir því að fólk um allan heim horfir á fótbolta.

Þeir voru í miklum vandræðum með okkur. Ef þú ert með blöndu af hæfileikum og ákefð, þá færðu svona leik. Ég elskaði þennan leik. Það mun einhver kvarta yfir varnarleiknum en mér er alveg sama. Það er alltaf einhver sem finnur hár í súpunni,“ sagði Þjóðverjinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert