Giggs ráðinn landsliðsþjálfari Wales

Ryan Giggs.
Ryan Giggs. AFP

Ryan Giggs var nú rétt í þessu ráðinn landsliðsþjálfari Wales í knattspyrnu. Hann tekur við þjálfun landsliðsins af Chris Coleman sem ákvað að stíga til hliðar í nóvember.

Giggs, sem lék 64 lands­leiki fyr­ir Wales, lagði skóna á hill­una 2016. Hann var aðstoðarmaður Lou­is van Gaal hjá Manchesterliðinu tvö tíma­bil og stýrði svo liðinu í nokkr­ar vik­ur eft­ir að Van Gaal var rek­inn.

Samningur Giggs við velska knattspyrnusambandið er til fjögurra ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert