Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er í byrjunarliði hjá Aston Villa sem mætir Barnsley í ensku B-deildinni í knattspyrnu. Birkir hefur leik á miðjunni en honum var hrósað á dögunum af stjóra sínum, Steve Bruce.
Birkir hefur undanfarið verið að nálgast byrjunarliðið hjá Aston Villa sem er í 5. sæti deildarinnar í umspilssæti um laust sæti í úrvalsdeildinni.
„Ég var mjög ánægður með hann. Ég vildi sjá hvort hann gæti spilað í þessari stöðu og hann gerði það vel. Ég var ánægður fyrir hans hönd því hlutirnir hafa ekki gengið eins vel hjá honum og við vildum frá því hann kom,“ sagði Bruce eftir 1:0 sigur Villa gegn Nottingham Forest en Birkir lék þá allan síðari hálfleikinn á miðjunni.
Þá kemur það ekki mikið á óvart að Jón Daði Böðvarsson er í byrjunarliðinu hjá Reading gegn Brentford en hann skoraði þrennu í síðasta leik.
Team news: Our first XI and subs for today’s #AVLBAR clash...
— Aston Villa FC (@AVFCOfficial) January 20, 2018
Birkir Bjarnason starts in central midfield. #PartOfThePride #AVFC pic.twitter.com/qkT7ykpUok