Segir stutt í að Sánchez komi

Jose Mourinho fylgist með sínum mönnum í dag.
Jose Mourinho fylgist með sínum mönnum í dag. AFP

„Ef þú skorar ekki ertu í vandræðum og andstæðingurinn reynir mikið af löngum boltum og leikurinn verður erfiður en við vörðumst vel," sagði Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir 1:0-sigur á Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley í dag.

Alexis Sánchez ætti að öllu óbreyttu að vera orðinn leikmaður Manchester United fljótlega.

„Ég held hann sé að koma. Það er ekki búið að staðfesta neitt, en það er mjög nálægt því að ganga í gegn,“ sagði Mourinho. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert