Allir nema einn fengu 5 hjá Liverpool

Alfie Mawson fagnar marki sínu gegn Liverpool í kvöld.
Alfie Mawson fagnar marki sínu gegn Liverpool í kvöld. AFP

Allir leikmenn Liverpool nema bakvörðurinn Andrew Robertson fengu 5 í einkunn hjá Sky Sports fyrir frammistöðu sína í leiknum gegn Swansea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem botnliðið fagnaði sætum sigri.

Robertson fékk hæstu einkunn Liverpool eða 6. Markaskorarinn Alfie Mawson var valinn maður leiksins hjá Sky Sports en hann fékk 8 í einkunn eins og markvörðurinn Lukasz Fabianski.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert