Einn leikur er á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar Swansea, sem situr í botnsætinu, tekur á móti Liverpool.
Virgil van Dijk gæti byrjað sinn fyrsta deildarleik fyrir Liverpool eftir komuna frá Southampton, en hann hefur verið að glíma við smávægileg meiðsli. Mohamed Salah, sem hefur farið á kostum á leiktíðinni, er einnig að jafna sig á meiðslum en fyrirliðinn Jordan Henderson verður að öllum líkindum ekki með.
Liverpool hefur ekki tapað í síðustu 14 leikjum sínum í deildinni og er með 47 stig í fjórða sætinu, en með sigri jafnar liðið Chelsea að stigum í sætinu þar fyrir ofan.
Hjá Swansea snýr Kyle Naughton aftur eftir að hafa setið af sér þriggja leikja bann, en með sigri getur Swansea jafnað West Brom að stigum í 19. sætinu.