Ræningjarnir byrja í enska bikarnum

Jake Livermore og Jonny Evans voru á meðal þeirra sem …
Jake Livermore og Jonny Evans voru á meðal þeirra sem fóru fram úr sér í Barcelona. AFP

Dómgreindarbrestur lykilmanna enska úrvalsdeildarliðsins West Brom virðist ekki ætla að draga dilk á eftir sér eins og sjá má á byrjunarliði liðsins gegn Southampton í enska FA-bikarnum í knattspyrnu.

Nokkrir af helstu reynsluboltum liðsins, þeir Jonny Evans, Ga­reth Barry, Jake Li­vermore og Boaz Myhill, stálu leigubíl í æfingaferð liðsins til Barcelona á fimmtudag. Þeir voru yfirheyrðir af lögreglu en ekki handteknir, og báðust afsökunar á athæfi sínu.

Evans og Barry eru báðir í byrjunarliði West Brom í dag og Myhill er varamarkvörður en Livermore er meiddur. Ætla má að félagið hafi ekki efni á að refsa þeim enda berst liðið í bökkum í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert