Svekkjandi jafntefli Harðar og félaga

Hörður Björgvin Magnússon.
Hörður Björgvin Magnússon. AFP

Landsliðsmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn í hjarta varnar Bristol sem gerði svekkjandi jafntefli við Leeds í ensku B-deildinni í knattspyrnu.

Hörður og félagar komst í 2:0 með mörkum frá Famara Diedhiou og Bobby Reid á 11. og 16. mínútu og þannig var staðan þangað til á 72. mínútu er Pierre-Michel Lasogga minnkaði muninn. Kemar Roofe jafnaði svo metin á 80. mínútu, 2:2 lokatölur.

Bristol hefur 53 stig í 6. sæti sem er síðasta sætið sem veitir keppnisrétt í umspili um sæti í úrvalsdeildinni. Leeds hefur 45 stig í 12. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert