Arsenal mætir AC Milan í Evrópudeildinni

Leikmenn Arsenal fagna marki sínu gegn Östersund í gærkvöld.
Leikmenn Arsenal fagna marki sínu gegn Östersund í gærkvöld. AFP

Nú í hádeginu var dregið til 16 liða úrslitanna í Evrópudeildinni í knattspyrnu í höfuðstöðvum evrópska knattspyrnusambandsins í Nyon í Sviss.

Arsenal fékk erfiðan mótherja en Lundúnaliðið dróst á móti ítalska liðinu AC Milan. Sigurvegarinn í Evrópudeildinni tryggir sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð.

Drátturinn varð þessi:

Lazio - Dynamo Kiev

Leipzig - Zenit Pétursborg

Atlético Madrid - Lokomotiv Moskva

CSKA Moskva - Lyon

Marseille - Athletic Bilbao

Sporting Lissabon - Victoria Plzen

Dortmund - Salzburg

AC Milan - Arsenal

Fyrri leikirnir fara fram 8. mars og síðari leikirnir 15. mars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert