Gylfi Þór í byrjunarliði Everton

Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Everton gegn Crystal Palace …
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Everton gegn Crystal Palace fyrr á leiktíðinni. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er á sínum stað í byrjunarliði Everton sem mætir Watford í 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla á Vicarage Road í dag.

Þetta verður 25. deildarleikur Gylfa Þórs fyrir Everton á yfirstandandi leiktíð, en hann hefur skorað fjögur mörk í deildinni á leiktíðinni og lagt upp þrjú mörk fyrir samherja sína. 

Leikur Watford og Everton verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert