Rojo framlengir til 2021

Marcus Rojo verður í herbúðum Manchester United til 2021 eftir …
Marcus Rojo verður í herbúðum Manchester United til 2021 eftir að hafa skrifað undir nýjan samning við félagið. AFP

Argentínumaðurinn Marcos Rojo hefur skrifað undir nýjan samning við Manchester United. Nýi samningurinn gildir til ársins 2021. Rojo hefur verið í herbúðum Manchester United frá árinu 2014 en til félagsins kom hann frá Sporting. 

Rojo hefur vegna meiðsla í hné ekki leikið með United síðan í leiknum við Huddersfield 3. febrúar. Hann mun veraá batavegi og vonast til þess að komast inn á völlinn fljótlega. Rojo var lengi frá keppni vegna hnémeiðsla á síðasta ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert