Leikdagar í undanúrslitum bikarsins klárir

Paul Pogba, leikmaður Manchester United, og Christian Eriksen, leikmaður Tottenham …
Paul Pogba, leikmaður Manchester United, og Christian Eriksen, leikmaður Tottenham Hotspur. AFP

Búið er að ákveða leikdagana í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu sem báðir fara fram á Wembley leikvanginum í London.

Laugardaginn 21. apríl klukkan 16.15 mætast Tottenham og Manchester United og sunnudaginn 22. apríl klukkan 14 leiða Chelsea og Southampton saman hesta sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert