Frábærir hlutir taka endi líka (myndskeið)

Zlatan Ibrahimovic fagnar marki með Manchester United.
Zlatan Ibrahimovic fagnar marki með Manchester United. AFP

Zlatan Ibrahimovic er farinn frá Manchester United en Svíinn mun ganga í raðir bandaríska liðsins LA Galaxy á næstu dögum.

„Frábærir hlutir taka enda líka og það er kominn tími til fara eftir tvö frábær tímabil með Manchester United. Þakkir til félagsins, stuðningsmannanna, liðsins, þjálfarans og starfsliðs og til allra sem deildu með mér þessum hluta af minni sögu,“ skrifar Zlatan á Instagram síðu sína.

Zlat­an, sem er 36 ára gam­all, skoraði 29 mörk í 53 leikj­um með Manchester United en hann kom til liðsins árið 2016 frá Par­is SG.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert