Ekki auðvelt að spila við Burnley

Antonio Conte var líflegur á hliðarlínunni í kvöld.
Antonio Conte var líflegur á hliðarlínunni í kvöld. AFP

„Við spiluðum vel á móti erfiðu liði. Það er ekki létt að spila á móti Burnley, en það gekk vel með tvo framherja," sagði Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea í samtali við BBC eftir 2:1-sigur á Burnley í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Conte hrósaði þeim Alvaro Morata og Olivier Giroud sérstaklega, en þeir léku saman í framlínunni. 

„Við spiluðum mjög vel með og án boltans. Allt liðið lagði mikið á sig og við áttum skilið að vinna. Það hentar okkur vel að spila með tvo frammi. Framherjarnir léku mjög vel saman og lögðu mikið á sig. Við viljum nú komast í úrslit bikarsins en það verður ekki auðvelt. Við verðum að berjast líkt og við gerðum í dag," sagði Conte. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert