Liverpool opinberar nýjan búning

Nýr búningur Liverpool.
Nýr búningur Liverpool. Ljósmynd/liverpoolfc.com

Enska knattspyrnuliðið Liverpool opinberaði í dag nýjan aðalbúning liðsins fyrir næsta tímabil. Búningurinn birtist á heimasíðu Liverpool í dag en það er bandaríska íþróttavörufyrirtækið New Balance sem framleiðir búninginn.

Rauði liturinn er aðeins dekkri en verið hefur síðustu ár hjá rauða hernum en annars er haldið í sama þema og undanfarin ár þar sem horft er til fortíðar og búningurinn því áfram í nokkurs konar „retró“-stíl.

Skoða má nánari smáatriði hér á heimasíðu Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert