Klopp skellihló að ítölskum túlki – myndband

Jürgen Klopp var léttur á því á blaðamannafundinum.
Jürgen Klopp var léttur á því á blaðamannafundinum. AFP

Liverpool og Roma mætast í fyrri undanúrslitaleik sínum í Meistaradeild Evrópu í fótbolta annað kvöld. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sat fyrir svörum blaðamanna vegna leiksins í gær.

Margir ítalskir blaðamenn eru staddir í Liverpool og var ítalskur túlkur fenginn til að vinna á fundinum. Klopp þótti þýðingar hans ansi furðulegar, enda virtist túlkurinn tala mun lengur en sjálfur. 

Hér að neðan má sjá þetta skemmtilega myndband og er augljóst að Klopp hefur mjög gaman af túlkinum skrautlega. Að lokum skellihlær hann.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert