Chelsea átti þetta ekki skilið

Jose Mourinho á hliðarlínunni í dag.
Jose Mourinho á hliðarlínunni í dag. AFP

„Ég vil óska þeim til hamingju því þeir unnu, en mér fannst þeir ekki eiga það skilið," sagði svekktur Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United eftir 1:0-tap fyrir Chelsea í úrslitaleik enska bikarsins í dag. 

Hann segir sína menn hafa saknað Romelu Lukaku í dag en Belginn byrjaði á bekknum og kom inn á í síðari hálfleik.

„Það var erfitt fyrir okkur að spila án Lukaku á móti liði sem verst með níu menn. Öll töp eru sár en ég fer stoltur heim, við gerðum okkar besta og við sjáum ekki eftir neinu."

„Það eru ekki vitleysingar í Chelsea og þeir vita hvernig þarf að verjast þegar við erum hvorki með Fellaini né Lukaku. Við reyndum okkar besta en þeim tókst að stoppa okkur. Mér finnst eins og David de Gea hafi ekki komið við boltann nema til að taka hann úr markinu," sagði Mourinho. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert