Chelsea enskur bikarmeistari

Eden Hazard nælir í vítaspyrnu sem hann skoraði úr.
Eden Hazard nælir í vítaspyrnu sem hann skoraði úr. AFP

Chelsea er enskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir 1:0-sigur á Manchester United í úrslitaleik á Wembley í dag. Eden Hazard skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik sem hann náði í sjálfur.

Hazard stakk sér þá inn fyrir, framhjá Phil Jones sem braut á honum og vítaspyrna réttilega dæmd. Hazard skoraði af miklu öryggi á vítapunktinum. 

United sótti meira í síðari hálfleik í leit að jöfnunarmarki en Thibaut Courtois stóð vaktina vel í markinu og Chelsea sigldi sigri og enska bikarnum í hús. 

Chelsea 1:0 Man. Utd opna loka
90. mín. Það verða að minnsta kosti fimm mínútur í uppbótartíma.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert