Stoke ræður eftirmann Lambert

Gary Rowett er nýr knattspyrnustjóri Stoke City.
Gary Rowett er nýr knattspyrnustjóri Stoke City.

Gary Rowett skrifaði rétt í þessu undir þriggja ára samning við enska félagið Stoke City og verður hann nýr knattspyrnustjóri liðsins. Hann tekur við af Paul Lambert sem yfirgaf félagið á dögunum.

Stoke féll úr ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili og er Rowett ætlað að koma liðinu aftur upp í deild þeirra bestu.

Rowett kemur til Stoke frá Derby, þar sem hann stýrði liðinu alla leið í umspil um sæti í efstu deild. Derby varð hins vegar að sætta sig við tap fyrir Fulham í undanúrslitum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert