City og United á eftir sama leikmanni

Fred er eftirsóttur.
Fred er eftirsóttur. AFP

Nágrannarnir Manchester City og Manchester United eru bæði áhugasöm um að fá brasilíska landsliðsmanninn Fred til liðs við sig. Fred hefur verið skærasta stjarna Shakhtar Donetsk á undanförnum árum. 

Forráðamenn United hafa rætt við umboðsmann Fred síðustu daga á meðan Shakhtar hafnaði 50 milljóna evra tilboði City í janúar. Fred er í landsliðshópi Brasilíu fyrir heimsmeistaramótið í Rússlandi.

„Það var möguleiki á að fara til City og svo hafði United áhuga. Bæði félög eru búin að ræða við umboðsmanninn minn. Ég er bara að hugsa um HM núna, en það er heiður að stjórar eins og José Mourinho og Pep Guardiola séu að fylgjast með mér,“ sagði Fred við brasilíska fjölmiðla í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert